Í Kálfshamarsvík eru sjávarhamrar úr fallega formuðu stuðlabergi er myndaðist fyrir u.þ.b. tveimur milljónum ára, sérkennileg náttúrusmíð.
Vitinn er aðgengilegur með bíl á sumrin. Skilti á malarvegi nr.745 sýna hvernig best er að komast að klettunum. Þar er bílastæði og góður áningarstaður. Í byrjun 20.aldar var útgerð og um 100 manna byggð í Kálfshamarsvík en um 1940 var byggðin komin í eyði.
Gott að ganga um svæðið, auðvelt og hentar öllum.