Orbis et Globus

Listaverkið Hringur og kúla / Orbis et Globus / Circle and Sphere er kennileiti fyrir heimsskautsbauginn eftir Kristinn E. Hrafnsson og Studio Granda sem vígt var árið 2017 eða 300 árum frá því að baugurinn kom fyrst inn á eyjuna.
Kúlan er 3 metrar í þvermál og er hugmynd listamannanna sú að hún færist úr stað í samræmi við hreyfingar heimsskautsbaugsíns þar til hann yfirgefur eyjuna árið 2047 eða því sem næst.
Tillaga Kristins og Studio Granda sigraði í samkeppni um nýtt kennileiti sem efnt var til undir lok ársins 2013. 
 
Göngutúr frá höfninni að listaverkinu er um 3.7 km og frá flugvellinum um 2.5 km. Reikna má með um 3 klst. í gönguna (fram og tilbaka) og mælt er með því að dvelja yfir nótt því hefðbundin stopp hjá ferjunni og áætlunarfluginu eru í knappasta lagi til að njóta og sjá það helsta í eyjunni. Meðal annars er mælt með því að rölta um þorpið, koma við hjá Fiskeminnismerkinu og lesa söguskiltin, líta við á veitingastaðnum Kríunni og/eða minnsta kaffihúsi Íslands á gallerí Gullsól. Einnig er mælt með að ganga suður að Vitanum og rölta meðfram strandlengjunni á suðvestur hluta eyjarinnar og skoða fallegt stuðlaberg auk minja um gamlar sjóbúðir. Á þeirri leið má einnig finna "Aldarsteinana" sem sýna staðsetningu heimskautsbaugsins árið 1717, 1817 og 1917. Á meðan á aðal fuglatímanum stendur, en hann er frá lokum apríl til byrjun ágúst, er gott að reikna með góðum tíma til fuglaskoðunar því það er sannarlega ríkulegt og heillandi í Grímsey.