1238: Baráttan um Ísland

Sögusetrið 1238 Baráttan um Ísland segir sögu Sturlungaaldarinnar í gagnvirkri sýningu sem gengur skrefinu lengra en hefðbundnar fræðslusýningar. Með hjálp nýjustu tækni, í miðlun og sýndarveruleika, bjóðum við gestum á öllum aldri að taka þátt og upplifa söguna sem aldrei fyrr. Áhersla er lögð á þá stóru bardaga sem einkenndu öld Sturluna, einkum Örlygsstaðabardaga, sem fram fór árið 1238. Í anddyri sýningarinnar er einnig rekin minjagripaverslun, upplýsingamiðstöð og veitingastaðurinn Grána Bistró.