Drangeyjarferðir

Ferðiur út í Drangey frá Sauðárkróki hefjast 20 maí og eru til 20. ágúst.

Förum daglega kl.10:00, og við bætum við ferðum eftir þörfum og óskum.

 Í maí og eftir 20.ágúst eru ferðir eftir samkomulagi.

Sigling út í Drangey er ævintýri líkust enda er eyjan náttúruperla í miðjum Skagafirði. Eyjan er þverhníptur móbergsklettur um 180 metrar á hæð og býður því upp á frábært útsýni yfir allan fjörðinn.

Fuglalíf er fjölbreytt í Drangey þótt mest beri þar á svartfuglategundum, og er þar lundinn frægastur fugla.

Ferðin í Drangey tekur ca. 3.klst. með siglingu, göngu, leiðsögn, fuglaskoðun og oftar en ekki láta selir og hvalir sjá sig á leiðinni. Komdu og njóttu fallegrar náttúru og upplifðu Drangey í allri sinni dýrð.

Vinsamlegast hafið samband vegna ferða og bókana.