Húsavík

Húsavík er elsti bær á Íslandi ásamt því að vera stærsti bærinn í Þingeyjarsýslu og þjónustar hann nærlæg svæði. Bærinn er kallaður „höfuðborg hvalanna“ vegna þess að hann er þekktur fyrir hvalaskoðun á Skjálfandaflóa. Hægt er að finna 23 tegundir hvala þar á meðal steypireyð í flóanum og einnig er hægt að sjá stórar varpstöðvar lunda.

Á Hvalasafninu má sjá raunstærð hvala þar sem meðal annars er 22 metra löng beinagrind af steypireyð til sýnis þar. Það eru nokkur hvalaskoðunarfyrirtæki á Húsavík sem sigla seglum þöndum í leit að þessum stórkostlegu dýrum á flóanum, en slíkt er reynsla sem engin ætti að missa af og gleymist aldrei. Heimsókn í Safnahúsið svíkur heldur engan en þar er sjóminjasýning, sýning um mannlíf og náttúru í 100 ár, skjalasafn, myndasafn og sýningarsalur fyrir list þar sem eru rúllandi sýningar. Menningarlíf í þorpinu og nærsveitum er blómlegt og áhugamannaleikfélagið á staðnum er meðal þeirra bestu á landinu. Það er einnig talsvert af kórum og hljómsveitum á staðnum.

Á Húsavík má finna allskonar gistiaðstöðu og veitingastaði. Einnig er þar bakarí, bruggverksmiðja og bar, tjaldsvæði, sundlaug, golfvöllur, skíðasvæði og góðar gönguleiðir. Nýlega opnuðu sjóböð á svæðinu sem bjóða upp á bað í heitu sjóvatni með ótrúlega fallegu útsýni yfir Skjálfanda. Flugvöllur er rétt fyrir utan bæinn og því auðvelt að komast á staðinn.