Ytra Lón

Ytra Lón er við veg nr.869, 14 km norðaustur af Þórshöfn. Flugferðir eru til og frá Akureyri alla daga nema um helgar.

Ertu að leita að ró og næði? Við getum mælt með þessu notalega gistiheimili. Þar sem það er staðsett á miðju Langanesi er það góður kostur til að byrja skoðunarferð um þennan norð-austur hluta Íslands. Það er afskekkt, en virkilega þess virði. Friður fyrir sálina, með fjöllin, hafið, fuglana...

Við bjóðum upp á:  

Morgunmat og kvöldmar með ferskum afurðum úr sveitinni, s.s. lambakjöt af eigin framleiðslu og ferskan silung úr lóninu.

Leiðsögn um búið

Heitur pottur

Silungsveiði í lóninu

Skoðunarferðir um Langanesið